Myndapóstur – Borgarnes-mótið – 17. júlí 2026

Myndapóstur – Borgarnes-mótið – 17. júlí 2026

Sumarmót Teigs var haldið á golfvellinum við Borgarnes – Hamarsvelli – föstudaginn 17. júlí 2026. Góð þátttaka, ræst út frá klukkan 10.00 til 13.00.

Enn og aftur hittum við á góðan veðurdag, mitt í blautri og vindasamri tíð, á þessum sumartíma Teigsfélaga á Íslandi. Völlurinn var góður, flatirnar hraðar, glaðningur á upphafsteig og ,,sveiflujafnari” í formi kakós og austurísks mjaðar við teig 9. brautar. Eftir golfið hafði fólk sig til fyrir góða þriggja rétta kvöldverðinn á Hamars-hótelinu þar sem hin ýmsu verðlaun voru veitt og einnig tekið lagið, spjallað og hlegið saman. Góður nætursvefn á þessu góða hóteli, sem Teigsfélagarnir Unnur og Hjörtur byggðu upp á upphafsárum þess. Góður morgunverður og notalegt spjall. Takk fyrir gott mót og gefandi samveru.

Comments are closed.