Browsed by
Author: Arinbjörn Sigurgeirsson

Myndapóstur – Mojacar – Verðlaun

Myndapóstur – Mojacar – Verðlaun

Vorferð Teigs 2026 var að venju suður á við, til Mojacar, 20.-23. apríl 2026. Mótið var að venju tveir 18 holu golfhringir, 21. og 22. apríl, og á fundi í lok seinni dagsins voru veitt þrenn verðlaun fyrir flesta punkta, auk einna höggleiksverðlauna, bæði í kvenna- og karlaflokki. Níu konur spiluðu tvo 9 holu hringi sömu daga og voru veitt ein verðlaun fyrir þann hluta mótsins. Einnig nándarverðlaun. Einnig voru veitt þrenn verðlaun fyrir bæði konur og karla, í mánudags-mótaröð…

Read More Read More

Myndapóstur – Mini-golfs- og matarhittingur

Myndapóstur – Mini-golfs- og matarhittingur

Duglegt fólk í Teigi skipulagði mini-golfs- og matarhitting 1. apríl – ekkert gabb – á Pitcher and putt, á ská á móti Ivy bar – sem er líklega í La Flamenca hverfinu á Orihuela svæðinu. Líklega samtals um 50 manns. Spilaður 18 holu hringur, í fjögurra manna hollum, kvenna og karla. Og avo var matur af hlaðborði, sem komið var með í veitingavagni – svínakjöt og margt fleira – góður matur. Góð stund saman, eins og alltaf hjá Teigs-félögum. Myndir:…

Read More Read More

Myndapóstur – mánudagskeppni í mótaröðinni, nr. 2 2026

Myndapóstur – mánudagskeppni í mótaröðinni, nr. 2 2026

Mánudagsmót Teigsfélaga á Vistabella golfvellinum á Spáni, 9. febrúar 2026. Blautt að morgni, eftir nóttina, en þurrt veður og hlýnaði. Myndir af verðlaunahöfum og Hirti, sem afhenti verðlaunin, en sem fékk svo í lokin ein verðlaunin sjálfur, úr hendi Þórs formanns. Lokamyndin er af hrífu við sandglompu, sem golfreglufróð kona segir að sé rangt frágengin – hrífurnar eigi ekki að liggja á bakkanum, heldur vera í sandinum – hún bað mig að koma þessu á framfæri með þessari myndbirtingu hér.

Myndapóstur – Fyrsta keppni í mótaröðinni á árinu 2026 – mánud. 2. febrúar 2026

Myndapóstur – Fyrsta keppni í mótaröðinni á árinu 2026 – mánud. 2. febrúar 2026

Fyrsti keppnisdagurinn á árinu 2026 í mótaröð Teigs – á Vistabella-golfvellinun á Spáni. Svalt veður í byrjun dags, svo hlýtt og gott og þar á eftir dálítill vindur og nokkrir regndropar. Myndir af verðlaunaveitingum og nokkrar af félögum í kaffi og af vellinum. Á vellinum mátti meðal annars sjá lítinn hund í bandi – óalgengt á golfvöllum. Myndir: Arinbjörn Sigurgeirsson.

MYNDAPÓSTUR – 6. OKT. 2025

MYNDAPÓSTUR – 6. OKT. 2025

Myndir af verðlaunaafhendingum eftir fyrsta mótsdaginn í mánudags-mótaröð Teigs haustið 2025, 6. október. (Ekki tókst að klára 18 holu hringinn síðast, vegna mikillar úrkomu og eldinga í grennd.) Nú voru kynntar breyttar aðferðir við verðlaunaveitingar eftir hvern mótsdag, þannig að ef vinningshafi er farinn fyrir verðlaunaveitingu heldur klúbburinn hjá sér verðlaunum hans og þau þá endurnýtt í næstu verðlaunaveitingu. Hér eru myndir af viðstöddum sigurvegurum og nokkrar myndir af Teigsfélögum í lok verðlaunaveitingarinnar.