Teigsbragurinn
Okkar frábæra Teigskona og stuðbolti Unnur Halldórsdóttir hefur samið brag fyrir félagsmenn, til að fara með í gleðskap og mannamótum. Hann er birtur hér svo allir geti lært hann og æft sig og verið vel undirbúnir þegar kallið kemur:
Lag: Flagarabragur (Ég kátur stunda kvennafar). Texti: Unnur Halldórsdóttir
Er haustlægðirnar æsa sig og andskotast á Fróni
er ágætt ráð að drífa sig og forða heilsutjóni.
Á Spáni er gott að una sér á eðalgóðum degi,
og ekki er verra að leika sér með félögum í Teigi.
Viðlag:
Einn, tveir, í golfinu er gaman
að geta farið út á völl og leikið okkur saman.
Á Vistabella á mánudögum ferðum ekki fækkar,
og fljótt hjá okkur öllum þar
……forgjöfin svo lækkar.
Á „ Þriðju“ alltaf langar mig að leika undir pari,
en líklegt er að boltinn þó í vatnið bara fari.
Á „Sjöttu“ má svo vænta þess að skorið fari að skána
( ég skrái ekki höggið sem ég sló í stórutána)
Viðlag:
Einn, tveir, í golfinu er gaman,
að geta farið út á völl og leikið okkur saman.
Þó stundum sé nú vindurinn á Vistabella ærinn,
við vitum að í mótlæti
……….oft skapast bestu færin.
Vorferðin til Mojacar er meiriháttar gleði,
þó margir eigi á „Tíundu“ í ansi miklu streði.
Á barnum fyrir kvöldverðinn má kokteilana smakka,
já, klárlega allt skipulag skal mótsnefndinni þakka.
Viðlag:
Einn, tveir, í golfinu er gaman
að geta farið út á völl og leikið okkur saman.
Brekkurnar í Mojacar af öryggi við ökum
en andköfin í beygjunum
………við stelpurnar þó tökum.
Já, saman hér í golfinu við strengi skulum stilla
og stöðugt okkar lífsbikar af gleðisafa fylla.
Í lokavísu hæfir vel að leggja það til mála
að lyfti allir glasi hér, já, nú er rétt að skála!!!!!
Viðlag:
Einn, tveir, í golfinu er gaman
að geta farið út á völl og leikið okkur saman.
Það er ekki undarlegt þó allir hérna segi:
Afskaplega er skemmtilegt
að vera í klúbbnum Teigi.