Reglugerð

Reglugerð

REGLUGERÐ.

Teigur Amigos mótaröðin á Spáni

 

Tímabilið ca 1.okt. til 30.nóv. og 1.feb. til ca 25.apríl. Leikið er á Vistabella á mánudögum


Mótin eru punktakeppni með forgjöf hámarksforgjöf karlar 28 og konur 36  skor er fært í golfbox  leikið er í eftirtöldum flokkum:


Kvennaflokkur: Sjafnarbikarinn.

Konur leiki af rauðum teigum


Karlaflokkur: Samstöðuhnúturinn.

Karlar leiki af gulum teigum eða bláum

Karlar 70 + mega leika af gulum, bláum eða rauðum teigum.

 

Veitt eru verðlaun fyrir flesta punkta í 1. og 2. sæti í hverju móti í báðum flokkum.

Veitt eru  nándarverðlaun á valinni braut í hverju móti.

 

Ef fleiri en einn leikmaður eru jafnir að punktum, vinnur sá sem er með fleiri punkta á seinni 9 holunum og svo framvegis ef þarf.

______________________________________________________________________________

Árangur vetrarins gerður upp í golfferð í apríl ár hvert.

Veitt eru verðlaun fyrir 6 bestu samanlagða hringi leikmanns yfir veturinn.

 

Farandgripur fyrir 1.sæti og gripir til eigna í báðum flokkum (karla og kvenna).

Kvennaflokkur, SJAFNARBIKARINN. Karlaflokkur, SAMSTÖÐUHNÚTURINN.

Verðlaun 2. og 3. sæti, gripir til eigna í báðum flokkum.

 

Ef aðilar eru jafnir að punktum í lok mótaraðar fyrir 6 bestu hringina,

skal leika 3. holu umspil með forgjöf, ef enn er jafnt skal leika bráðabana uns

niðurstöður nást um 1. sætið.

Ef jafnt er í 3. til 4. sæti ræður hlutkesti.

Niðurstöðu skal ná í síðasta lagi viku eftir golfferð uppgjörsins.

 

Skráning í mót hefst á mánudegi og lýkur kl. 24.00 á Þriðjudegi

Skráð: 29. janúar 2015 – Uppfært í september 2018 – Uppfært 1.maí 2022- uppfært 13.apríl 2026  Mótanefnd Teigs amigos.