Eyjólfur Sigurðsson – heiðursfélagi – myndir

Eyjólfur Sigurðsson – heiðursfélagi – myndir

Á fjölmennum félagsfundi Teigs, þriðjudaginn 3. nóvember 2026, sem haldinn var á Sundlaugarbarnum á Orihuela svæðinu á Spáni – var Eyjólfur Sigurðsson, sem meðal annars er stofnfélagi og fyrsti formaður Teigs, gerður að heiðursfélaga í Teigi.

Núverandi formaður, Þór Ottesen Pétursson, tilkynnti ákvörðun stjórnar um þetta og afhenti Eyjólfi virðingarvott af þessu tilefni.

Í stuttri þakkarræðu rakti Eyjólfur tilurð Teigs, sem var 8 manna vinahópur sem spilaði saman golf á svæðinu og fleiri og fleiri leituðust eftir að bætast í hópinn, þar til Teigur var formlega stofnaður árið 2011.

Golfklúbburinn Teigur telur nú vel á annað hundrað félaga. Virk stjórn og verkaskipting, traustur rekstur, mikið skipulagt golf á Vistabella golfvellinum og víðar, vor og haustferðir og annað félagsstarf – og síðast en ekki síst – mikill og góður félagsandi og samvera.

Comments are closed.