Fundargerð stjórnarfundar 19. nóv. 2023

Fundargerð stjórnarfundar 19. nóv. 2023

Golfklúbburinn Teigur Amigos

Fyrsti fundur í stjórn GT starfárið 2023-2024 haldinn á Sundlaugarbarnum  19. nóvember 2023 kl. 14.00.

Mættir voru:  Guðlaugur Jónsson formaður, Hilmar Helgason, Hjörtur B. Árnason, Guðmundur Ágúst Pétursson, Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir og Sigríður Snorradóttir.

Formaður setti fund og bauð menn velkomna.

Dagskrá:

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Verkaskipting innan stjórnar
  3. Mojacar vorfundur 2024
  4. Dagsetning og staðsetning næsta aðalfundar
  5. Reglur frá mótanefnd

Afgreiðsla dagskrárliðar:

  1. Fundargerð síðasta fundar, engar athugasemdir bárust.
  2. Verkaskipting: Guðm. Ágúst Pétursson varaformaður, Hilmar Helgason gjaldkeri, Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir ritari, Jóhanna Guðbjörnsdóttir meðstjórnandi.   Sigríður Snorradóttir og  Hjörtur B. Árnason mótanefnd og er Sigríður formaður nefndarinnar.
  3. Mojacar vorfundur: Hilmari Helgasyni falið að senda póst og fá staðfest verð á hóteli og vallargjöldum vegna vorfundar GT.
  4. Aðalfundur 2024: Samþykkt að taka tilboði Golfskálans sem kynnt var á aðalfundi GT 2023.  Aðalfundurinn verður haldinn 11.-14. nóvember 2024 á Villaitana.
  5. Mótanefnd: Ákveðið var að senda öllum félagsmönnum tölvupóst með upplýsingum um hvernig ætti að skrá sig á teigtíma á Vistabella. Guðlaugur sagði frá því að búið væri að semja um verð á Vistabella og hækkar vallargjaldið  úr 59 evrum í 70 evrur á mann með bíl. Hækkunin tekur gildi í september 2024

Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið kl.1600

Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir, ritari.