Myndapóstur – Mojacar – Verðlaun

Myndapóstur – Mojacar – Verðlaun

Vorferð Teigs 2026 var að venju suður á við, til Mojacar, 20.-23. apríl 2026. Mótið var að venju tveir 18 holu golfhringir, 21. og 22. apríl, og á fundi í lok seinni dagsins voru veitt þrenn verðlaun fyrir flesta punkta, auk einna höggleiksverðlauna, bæði í kvenna- og karlaflokki. Níu konur spiluðu tvo 9 holu hringi sömu daga og voru veitt ein verðlaun fyrir þann hluta mótsins. Einnig nándarverðlaun.

Einnig voru veitt þrenn verðlaun fyrir bæði konur og karla, í mánudags-mótaröð Teigs í vetur á Vistabella golfvellinum, til þeirra sem viðstaddir voru.

Tekin hafa verið inn í Teig tvenn ný hjón, sem kynnt voru og boðin velkomin í Mojacar.

Ljósmyndir: Arinbjörn Sigurgeirsson.

Comments are closed.