Myndapóstur – mánudagskeppni í mótaröðinni, nr. 2 2026
Mánudagsmót Teigsfélaga á Vista Bella golfvellinum á Spáni, 9. febrúar 2026. Blautt að morgni, eftir nóttina, en þurrt veður og hlýnaði. Myndir af verðlaunahöfum og Hirti, sem fékk svo í lokin ein verðlaunin sjálfur, úr hendi Þórs formanns. Lokamyndin er af hrífu við sandglompu, sem golfreglufróð kona segir að sé rangt frágengin – hrífurnar eigi ekki að liggja á bakkanum, heldur vera í sandinum – hún bað mig að koma þessu á framfæri með þessari myndbirtingu hér.













