Rástímar fyrir fimmtudaginn 21.nóv.

Rástímar fyrir fimmtudaginn 21.nóv.

Sælir félagar. Hér kemur síðasti fimmtudagslistinn fyrir 2024. Greiðslulinkur: https://www.golfdirecto.com/embed/booking?game=65a7e259099e8b18a3120ad0&lang=en Breytingar/athugasemdir, ef einhverjar, berist til hjortur@vesturland.is Rástími Nr. Nafn Golfbox nr. G B R Buggy Annað 11:40 1 Linda Ragnarsdóttir 7-5447 X 11:40 1 Þórunn Haraldsdóttir 32-1162 X 11:40 1 Alma Harðardóttir 7-4867 X 11:40 1 Kristjana Skúladóttir 32-1346 X 11:48 2 Júlíus Snorrason 7-5450 X X 11:48 2 Bergsveinn Símonarson 12-317 X 11:48 2 Bjarni Bjarnason 7-4866 X 11:48 2 Hjörtur Árnason 60-346 X 11:56 3 Ólöf Ásgeirsdóttir 5-2047…

Read More Read More

Myndapóstur – Villaitana – nokkrar myndir úr golfinu í haustferðinni, 11.-14. nóvember 2024

Myndapóstur – Villaitana – nokkrar myndir úr golfinu í haustferðinni, 11.-14. nóvember 2024

Golf í mótinu var spilað þriðjudag og miðvikudag 12. og 13. nóvember 2024. Smá rigning fyrri daginn, en hvassara og blautt á köflum síðari daginn. Víða fallegt og stórfenglegt útsýni af golfvöllunum.    Örfáir golfbílar í boði – nei, þeir voru margir og góðir.  Þessar myndir eru nú reyndar frá 10. nóvember, á aukagolfdegi þeirra sem mættu fyrr á svæðið.  Við Melia Villaitana hótelið er víða fallegt – mynd tekin út um glugga.  Eitt af hollunum góðu.  Nokkrar sandgryfjur, í…

Read More Read More

Myndapóstur – Villaitana – Lokahófið miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Myndapóstur – Villaitana – Lokahófið miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Ljósmyndir úr lokahófi í haustferð Teigs, á Melia Villaitana hótelinu fyrir ofan Benidorm.  Lokahófið fór fram á neðri hæð ,,Kirkjunnar” – í glæsilegu húsnæði og með tónlist, góðum mat, drykkjum og þjónustu. Hljóðvistin ekki góð – en gaman saman í góðum félagsskap, takk.    Gítarleikarinn, sem spilaði kvöldverðartónlist fyrir okkur og gerði það vel.  Gulla formanni færð gjöf og kveðskapur Unnar – ekki hægt að birta myndband (of stórt fyrir vefinn), en vísurnar eru hér á vefnum í sérstökum pósti. 

Úrslit Vistabella 18. nóv.

Úrslit Vistabella 18. nóv.

Konur: FGJ. Punktar Rósa Margrét Sigursteinsdóttir 24.4 42 Gíslunn Loftsdóttir 25.5 40 Þórunn Anna Haraldsdóttir 15.0 35 Særós Guðnadóttir 31.1 34 Alma Harðardóttir 23.3 32 Kristjana Skúladóttir 20.3 31 Ólöf Ásgeirsdóttir 21.8 31 Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir 31.8 29 Rut Magnúsdóttir 26.7 25 Guðrún Guðmundsdóttir 34.6 23 Unnur Halldórsdóttir 40.1 21 Sigríður Þorsteinsdóttir 47.8 16 Berglind Hallgrímsdóttir 54.0 16 Þuríður Jóhannsdóttir 33.4 15 Laufey Eyjólfsdóttir 44.7 15 Jóhanna Guðnadóttir 30.0 14 Þóra Hauksdóttir 36.1 13 Höggleikur: Þórunn Anna Haraldsdóttir  90 högg…

Read More Read More

Myndapóstur – Villaitana – Verðlaunaafhendingar og skorkortavinningar – miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Myndapóstur – Villaitana – Verðlaunaafhendingar og skorkortavinningar – miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Í lokahófi haustferðarinnar voru veitt verðlaun fyrir tveggja daga golfmótið á Levante golfvellinum, við Melia Villaitana hótelið fyrir ofan Benidorm. Báðir golfvellirnir við Villaitana hótelið; Levante og Poniente (í gilinu), eru 18 holu vellir. Aðalfundurinn og lokahófið voru í ,,Kirkjunni”, sem er stórglæsilegt hús, fundurinn á efri hæðinni (sjá annan myndapóst) en lokahófið á neðri hæðinni. Einnig var dregið úr hinum ýmsu skorkortum (nöfnum klúbbfélaga og gesta) og afhentir margir góðir vinningar. Nýr formaður Teigs, Þór Ottesen Pétursson, afhenti verðlaunin…

Read More Read More

Myndapóstur – Villaitana – Aðalfundur Teigs miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Myndapóstur – Villaitana – Aðalfundur Teigs miðvikudaginn 13. nóvember 2024

Aðalfundur Teigs 2024 var haldinn í haustferðinni, á Melia Villaitana hótelinu ofan við Benidorm, miðvikudaginn 13. nóvember 2024, að viðstöddu fjölmenni. Fundurinn fór fram á efri hæðinni í ,,Kirkjunni” – og telur ljósmyndari líklegt að aðalfundur félagsins hafi tæplega áður verið haldinn í glæsilegra húsnæði (en með fyrirvara um að hafa ekki setið alla aðalfundina). Hljóðgæðin voru hins vegar ekki eins eins góð, en það er algengt í flottum sölum á hótelum á Spáni – og í þessu tilviki var…

Read More Read More

Myndapóstur – Villaitana – Tapas-veislan þriðjudaginn 12. nóvember 2024

Myndapóstur – Villaitana – Tapas-veislan þriðjudaginn 12. nóvember 2024

Hér koma myndir af Teigsfélögum og gestum í Tapas-veislunni sem Teigur bauð félagsmönnum sínum í og gestir tóku líka þátt í. Veislan fór fram í sal til hliðar við morgunverðarsalinn á Melia Villaitana hótelinu fyrir ofan Benidorm, sem við gistum öll á. Vel var veitt af tapas-smáréttunum, áfengi, gosdrykkjum og vatni, eins og við var að búast af Teigi og hótelhöldurum – fyrir góða milligöngu Bergs hjá Golfskálanum.  Þar sem birta var aðeins takmörkuð eru stöku myndir aðeins hreyfðar –…

Read More Read More

Vísur úr lokahófi Villaitana

Vísur úr lokahófi Villaitana

Hér koma vísur úr lokahófi en það voru því miður margir sem ekki heyrðu vísurnar hennar Unnar Halldórsdóttur: Gulli formaður kvaddur Í golfklúbbi á Spáni hann Gulli fór með völdinGekk i ótal verkefni á morgnana og kvöldin.Prúttaði við golfvelli, græjaði bestu díla,Golfkúlur með afslætti og ódýrari bíla.Skráningu í Golfboxið gat hann líka fixað,Með góðum díl við Hellishóla það var bara mixaðHótelvist á Mojacar á haustin og á  voriní hinu og þessu amstri hann sparaði ei sporin.Teigur  á svo sannarlega huga…

Read More Read More

Þakkir til þeirra sem gáfu verðlaun í mótinu á Villaitana.

Þakkir til þeirra sem gáfu verðlaun í mótinu á Villaitana.

F.h. mótanefndar og stjórnar Teigs færum við eftirfarandi aðilum kærar þakkir fyrir veglegar gjafir í mót klúbbsins á Villaitana dagana 12 og 13 nóvember. Andrés Sigmundsson Langaholt Görðum Staðarsveit Heimilistæki Golfcompany Icelandair Hellishólar Glanni golfvöllur Golfklúbburinn Mosfellsbæ Snyrtistofan Fancy beauty Fanney Gísladóttir, Kristín og Scarlet Gunillan