Ársskýrsla Teigs 2026
Ársskýrsla Teigs 2026
Nú lýkur öðru starfsári mínu sem formanns í Teigur club. Árið hefur verið vel heppnað og vel gengið að halda öllu því góða fólki sem gerir okkur kleift að njóta lífsins hér á Spáni sem og árlegu sumarmóti á Íslandi.
Haldnir hafa verið bæði stjórnarfundir og rabbfundir innan stjórnar eftir þörfum. Reyndar gengur starfið mjög vel og vil ég í því samhengi nefna Mótanefnd og utanum hald móta sem eru Sigríður Snorradóttir formaður mótanefndar, Hjörtur Árnasson, Linda Ragnarsdóttir síðan er það Bjarni Bjarnason og Kári Arnór Kárason sem hafa umsón með Golfboxinu. Hafa þessir aðiljar staðið sig frábærlega í flóknu verkefni við skráningu og uppgjör móta og eiga stórt hrós skilið.
Síðan hafa. Níels Karlsson, Sigurjón Sindrason, Ellert Róbertsson og Arinbjörn Sigurgeirsson verið okkur innan handar á ýmsum sviðum. Ég vil biðja þá sem ég hef gleymt að nefna að virða það við mig. En öllu þessum aðilum er stjórnin þakklát.
Að venju var farið til Mojacar en það var 20-23. Apríl og eins og venja er leiknir 2 golfhringir og síðan formlegri mótaröð slitið ásamt inntöku nýrra félaga. Tókst þetta vel eins og oftast áður. Mæting góð að vanda.
Sumarmótið var í Borgarnesi spilað á hamri og gisti fjöldi á hótelinu en alls voru um 80 manns í þetta sinn. Almenn ánægja með aðbúnað og golfvöllinn.
Viðburðarnefnd, sem skipuð er Bryndísi Róbertsdóttur, Smára Magnússyni, Þorsteini Stígssyni og Unni Halldórsdóttur sem sér um útvegun og afhendingu verðlauna stóð jafnframt fyrir tveim atburðum, en það var Mini golf og matarhittingur á Pitcher and putt og var það ekkert apríl gabb þó svo það væri haldið 1. Apríl og voru um 50 manns sem mættu þar. Síðan var félagsfundur og minigolf á Picina bar. Góð mæting var og nýtti stjórnin tækifærið til að útnefna fyrsta heiðursfélaga okkar frábæra klúbbs en það var fyrsti formaður okkar Eyjólfur Sigurðsson og var honum afhentur blómvöndur ásamt gjörugum drykk. Þakkaði hann fyrir sig og fór í stuttu máli yfir söguna.
Stjórn hefur verið að skoða aðra velli til að spila auk Vistabella og hefur einn af þeim völlum Peraleja, sem reyndar Teigur lék áður fyrr á, verið skoðaður og munum við leika á honum 19. Nóv, 26. Nóv og 3. des hann er aðeins 9 holur en verður 18 holur þegar endurbótum lýkur. Verðið verður 40euro og má leik hvort sem vill 9 eða 18 holur fyrir þá upphæð og bíll kostar 24euro. Aðeins 20 komast að og verða rástímar milli kl. 9 og 10 svo mögulegt sé að fara 18 holur fyrir þá sem það vilja.
Mótaröðinn er í gangi og síðan hefur verið tekinn upp sú nýbreyttni að leika Texas Scramble eða Betri bolti á fimmtudögum og á mótanefndin hrós skilið fyrir framtakið sem hefur mælst vel. Þá hefur Júlíus Hallgrímsson boðið félögum okkar upp á kennslu á El plantio og hafa einhverjir félagar okkar nýtt sér þetta og sennilega skilar þetta sér í mótaröðinna.
Samningar við Vistabella fyrir næsta ár eru í höfn og verður sama verð og áður nema hvað að bílarnir hækka um 2euro. Góður árangur hjá okkar samningarmönnum þeim Guðlaugi Jónssyni og Guðmundar Ág. Péturssyni.
Held ég hafi þetta ekki lengra í bili.
F.h. stjórnar Teigs
Formaður
Þór Ottesen Pétursson