Skráning í mótið í Mojacar 21.apríl.
Sælir félagar.
Nú nálgast hápunktur vetrarins sem er ferðin til Mojacar.
Til þess að létta undir með þeim sem setja upp mótið biðjum við ykkur um að skrá ykkur með sama hætti og gert er á Vistabella.
Það er kominn SKRÁNINGARHNAPPUR fyrir leikdaginn, þ.e. 21. apríl, í dálkinn ” SKRÁ Í MÓT” á heimasíðunni.
Vinsamlegast skráið ykkur þar.
Eins og mörg ykkar vita þá eru bara GULIR OG RAUÐIR teigar í Mojacar en engir BLÁIR og þarf að hafa það í huga við skráningu.
Kveðja.
Hjörtur.