Fundargerð stjórnar 14. okt. 2024

Fundargerð stjórnar 14. okt. 2024

Golfklúbburinn Teigur Amigos.

 

Sjöundi stjórnarfundur Golfklúbbsins Teigs Amigos starfsársins 2023-2024 haldinn á Vistabella 14. október 2024 kl. 14.30

Mættir voru:  Guðlaugur Jónsson formaður, Hjörtur B. Árnason , Hilmar Helgason, Guðmundur Ágúst Pétursson, Katrín Ólöf Ástvaldsdóttir og Sigríður Snorradóttir Jóhanna Guðbjörnsdóttir boðaði forföll.  Einnig sat Bjarni Bjarnason fundinn.

Formaður setti fund og bauð menn velkomna.

Dagskrá:

1  Fara yfir ferðina til Villaitana 11.-14.nóvember n.k.

2  Samningar við Vistabellla fyrir 2025.

3  Golfbox umræða um greiðslur til Hellishóla.

4  Fjölgun félaga í klúbbinn. Stoppa skráningu?

5  Önnur mál.

A   Rástímar klárir, ca: 100  sem spila. Áætlað er að alls verði 112 manns í ferðinni 75 félagar auk gesta.  Bergur lætur vita um tilhögun tapas kvöldverðarins fljótlega.  Félagsmenn ábyrgjast greiðslur vegna   gesta sinna en félagsmenn eru í boði klúbbsins í kvöldverðinum.  Þarf að setja aukin kraft í að safna  vinningum.

B   Samkomulag við klúbbinn fyrir árið 2025 er ekki í höfn. Guðlaugur og Hilmar  eiga fund með þeim 25.  október.

C   Guðlaugi Jónssyni formanni var falið að komast að samkomulagi við Víði á Hellishólum.

D   Í október stendur til að taka inn eiginkonur nokkurra félaga.

E    Önnur mál:

      a) Fá heimild aðalfundar til fjölgunar félaga á næsta ári.

      b) Skoða innheimtu árgjalda 2025 og leggja það til grundvallar fjölgunar félagsmanna.

      c)  Rætt um hvort ætti að taka inn nýja félaga aðeins einu sinni á ári.

      d)  Athuga með myndatöku á spiladögum, hafa samband við Arinbjörn Sigurgeirsson.

Fleira ekki tekið fyrir

Fundi slitið kl. 15.30