Vista Bella 20. nóvember 2023.

Vista Bella 20. nóvember 2023.

Sælir ágætu félagar.

Það er miklu meira en fullbókað í golfið 20. nóvember og því komast ekki nærri allir með sem hafa bókað sig.  Ef félagar hafa lesið póstinn frá formanni, á síðu klúbbsins, þá kemur skýrt fram að rástímar hafa raskast vegna Mojacar.  Af því leiðir að það eru einungis 32 rástímar í boði mánudaginn 20. nóv, en ekki 52 eins og venja er á mánudögum.  Það verða hins vegar 52 rástímar í boði miðvikudaginn 22. nóv og síðan 48 rástímar mánudaginn 27. nóvember sem jafnframt verður síðasta mótið í mótaröðinni á þessu ári.

Svo það sé sagt þá gildir að fyrstur kemur fyrstur fær.

Kveðja

Hjörtur

Comments are closed.