Browsed by
Month: September 2022

Mojacar – skráning

Mojacar – skráning

Ágætu félagar, Hér fylgja upplýsingar varðandi skráningu í ferðina til Mojacar: Skráning fer fram á heimasíðu Teigs:  TEIGUR / SKRÁNING Í GOLF Í MOJACAR. Skráning hefst 1. október. Skráningu lýkur 25. október. Greiðsla þarf að berast til Hilmars Helgasonar gjaldkera í síðasta lagi 29. október. Þegar skráð er í reitinn 2ja manna herbergi þarf að setja 0 í hinn reitinn. Taka verður fram við skráningu hverjir spila. Klúbbfélagar eru ábyrgir fyrir greiðslu gesta sinna.

Aukamót í golfi

Aukamót í golfi

Sælir félagar, Mótaröðin hefst næsta þriðjudag (4. okt.) og verður leikið alla þriðjudaga til loka nóvember (utan 15. nóv. þegar við verðum í Mojacar). Tvö mót utan mótaraðar verða síðan föstudaginn 14. október og fimmtudaginn 10. nóvember. Leikform verður auglýst þegar nær dregur. Á næsta ári verða svona aukamót mun tíðari og nánar skýrt frá því á fundinum í Mojacar.

Forgjafir

Forgjafir

Sælir félagar, Enn eiga nokkuð margir eftir að senda mér (niels@tolvunot.is) forgjafir sínar miðað við 1. september 2022 skv. Golfbox. Vil ég biðja þá vinsamlegast um gera það sem fyrst. Níels