Sumarmót Teigs á Hellishólum 20 júlí 2025

Sumarmót Teigs á Hellishólum 20 júlí 2025

Mótsstjórn: Þór, Bjarni B, Hjörtur, Guðlaugur,, Sigríður Snorrad.,


Punktakeppni: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem fær flesta punkta með forgjöf.
Einnig verða verðlaun veitt fyrir annað og þriðja sæti í báðum flokkum.


Höggleikur: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem hefur fæst högg án forgjafar..
Ef sami keppandi hlýtur 1. sæti í báðum flokkum skal hann/hún aðeins fá verðlaun fyrir
punktakeppni. Sá/sú sem næst kemur í höggleik skal hljóta verðlaunin í þeirri keppni.
Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir að punktum eða höggum að lokinni keppni skal hún/hann
sem lék á flestum punktum eða fæstum höggum síðustu 9 holurnar og svo áfram ef þarf.
Gestir geta ekki unnið farandgripi klúbbsins.
Niðurstaða mótsins verður tilkynnt í sameiginlegum kvöldverði í lok móts og fer þá fram
verðlaunaafhending.


Ræst verður út kl. 10.00.  Mætum tímalega til leiks.
Ræst verður út á 1.teig   ATH golfvöllurinn er 9 holur og gætu fyrstu holl þurft að bíða smá stund eftir að hefja leik á seinni 9.


Mótsstjórn velur sér aðstoðarfólk eftir þörfum. Mótsstjórn ásamt aðstoðarfólki fer yfir skor
að lokinni keppni.
Mótsstjórn sér um útdrátt nafna í ráshópa


Konur leika á rauðum teigum. Hámarks leik- forgjöf: kvenna 36.

Karlar leika á gulum eða rauðum teigum Hámarks leik-forgjöf karla 28


Stuðst verður við Golfbox forgjöf GSÍ.
Leikmenn eru hvattir til að færa skor í Golfboxið.
Takið upp bolta á leikinni braut ef stefnir í tvöfalt par.

Nándar verðlaun kvenna næst holu eftir eitt högg á 5 flöt.
Nándar verðlaun karla næst holu eftir eitt högg á 1. Flöt.

Áður en fólk hefur leik verður fólk að velja sér teig í golfboxinu í símanum, reglan er sú að bara einn skráir fyrir hollið, og annar skráir til vara á skorkort.

Þeir sem ekki gista þurfa að greiða fyrir golfið og matinn áður en leikur hefst.

Hægt er að leigja golfbíla, Vinsamlegast hafið samband við mótstjórn ef þið viljið bóka bíl

Þór thorottes@internet.is  Bjarni bb@verkis.is  Sigga sigga@husafell.is


Ef einhverjar spurningar koma upp hafið þá samband.

Comments are closed.