Keppnisskilmálar í Mojacar
Vormót Golfklúbbsins Teigs. Keppnisskilmálar.
18. og 19 Apríl 2023 á MARINA GOLFVELLINUM. MOJACAR.
Mótsstjórn: Gulli, Ellert, Guðmundur Á. Péturs, Jóhanna S. Guðbjörns, Símon.
Punktakeppni með forgjöf: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem fær flesta punkta samtals fyrir báða keppnisdaga. Einnig verða verðlaun veitt fyrir annað og þriðja sæti í báðum flokkum.
Höggleikur án forgjafar: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem hefur fæst högg án forgjafar fyrir báða keppnisdagana.
Ef sami keppandi hlýtur 1. sæti í báðum flokkum skal hann/hún aðeins fá verðlaun fyrir punktakeppni. Sá/sú sem næst kemur í höggleik skal hljóta verðlaunin í þeirri keppni.
Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir að punktum eða höggum að lokinni keppni skal hún/hann sem lék á flestum punktum eða fæstum höggum síðustu 9 holurnar á síðari keppnisdegi hljóta verðlaunin, ef en er jafnt skal og svo framvegis.
Niðurstaða mótsins verður tilkynnt í lok vorfundar og fer þá fram verðlaunaafhending.
Ræst verður út báða keppnisdagana frá kl. 9.00.
Mæting við golfskála er kl. 8.30
Mótsstjórn velur sér aðstoðarfólk eftir þörfum. Mótsstjórn ásamt aðstoðarfólki fer yfir skorkort að lokinni keppni báða dagana.
Mótsstjórn sér um útdrátt nafna fyrir fyrri dag og tilkynnir um röðun fyrir seinni dag.
Konur leika á RAUÐUM teigum.
Karlar leika á GULUM teigum.
Karlar 70 + mega leika á RAUÐUM teigum.
Færsla á braut: Skorkortslengd ekki nær holu.
Færsla á flöt: Púttershaus en ekki nær holu.
Nándarverðlaun, allir með, verður á eftirtöldum brautum:
18.apríl. 2. braut eftir eitt högg.
19.apríl. 5. braut eftir eitt högg.
Mæling aðeins gild sé boltinn á flöt eftir upphafs högg.
Viðauki við staðarreglur Marina golfvallar:
- braut: Fallreitur er á miðri braut móts við girðingarhornið. Skal nota hann hafi bolti farið út fyrir vallarmörk eða tínst upp í hlíðinni. Gegn einu vitahöggi.
Vinstra megin á brautinni er merkt sem hliðar vatns torfæra.
ATHUGIÐ; Í Punktakeppni: Æskilegt: Til að flýta leik, taki leikmaður upp bolta ef stefnir í tvöfalt par á leikinni braut.
Á golfvellinum:
- Á teig skal í upphafi skiptast á skorkortum (láta kortin ganga hring).
- Ræsir skal fara yfir gildandi reglur og kanna hvort leikmenn hafi tilskilin áhöld tiltæk (flatargaffal, auðkennda bolta og staðarreglur).
- Leikmaður og ritari eru samábyrgir fyrir talningu högga leikmanns.
a. Um leið og golfbolti er kominn í holu eða tekinn upp skal leikmaður tilkynna niðurstöðu, höggafjölda sem hún/hann hefur leikið eða X ef bolti hefur verið tekinn upp.
b. Sé ritari ekki sammála skal gera athugasemdir strax.
c. Verði uppi ágreiningur um atriði í leik skal tilkynna það mótsstjórn að leik loknum og skal úrskurður mótsstjórnar gilda. - Að öðru leiti gilda almennar golfreglur og viðaukareglur sem klúbburinn hefur sett sér.
Regla 3-3b. Skor í höggleik. / Punktakeppni.
- Að lokinni umferð á keppandi að fara yfir skor sitt á hverri holu og gera út um vafaatriði með mótsstjórn. Keppandinn verður að ganga úr skugga um að ritarinn/ritararnir hafi undirritað skorkortið. Undirrita kortið sjálfur og afhenda mótsstjórn eins fljótt og unnt er.
- Röng skor á holu(m): Keppandi ber ábyrgð á að rétt skor sé skráð á skorkort hans fyrir sérhverja holu. Ef hann afhendir kort þar sem skor er skráð lægra en það sem rétt reynist:
SÆTIR HANN/HÚN FRÁVÍSUN
Mótanefnd Teigs amigos.