Keppnisskilmálar í Mojacar

Keppnisskilmálar í Mojacar

Haustmót Teigs amigos 2022,  Keppnisskilmálar.

15. og 16. nóv. 2022 á MARINA GOLFVELLINUM Í MOJACAR.

Mótsstjórn:  

Guðlaugur,  Guðmundur Ágúst,  Svanberg R, Ólafsson, Ellert,  Símon.

Punktakeppni með forgjöf: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem fær flesta punkta samtals fyrir báða keppnisdagana. Einnig verða veitt verðlaun fyrir annað og þriðja sæti í báðum flokkum. 

Höggleikur án forgjafar: Fyrsta sæti hlýtur hún /hann sem hefur fæst högg án forgjafar fyrir báða keppnisdagana

Ef sami keppandi hlýtur 1. sæti í báðum flokkum skal hann/hún aðeins fá verðlaun fyrir punktakeppni. Sá/sú sem næst kemur í höggleik skal hljóta verðlaunin í þeirri keppni.

Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir að punktum eða höggum að lokinni keppni skal hún/hann sem lék á flestum punktum eða fæstum höggum síðustu 9 holurnar á síðari keppnisdegi ef enn er jafnt reiknast næstu þrjár og ef enn er jafnt reikna næstu þrjár. Dugi það ekki skal varpa hlutkesti.

Niðurstaða mótsins verður tilkynnt í lok aðalfundar og fer þá fram verðlaunaafhending.

Mæting við golfskála er kl. 8,20 báða dagana

Ræst verður út báða keppnisdaga frá  kl. 8,54.              

Mótsstjórn sér um að draga í ráshópa fyrri daginn. Seinni daginn ræður árangur fyrri keppnisdags röðun í ráshópa.

Konur leika á RAUÐUM teigum.

Karlar leika á GULUM teigum.

Karlar 70 +  mega leika á RAUÐUM teigum auk

karla með grunnforgjöf 26,0 eða hærri sem einnig

mega leika á rauðum teigum.

Vinsamlega lagið boltaför á flötum.

Fyrri dagur: Nándar verðlaun eftir 1 högg:                         Konur 2. braut  /  Karlar  14. braut.

Seinni dagur: Nándarverðlaun eftir 1 högg:                       Konur 5. braut  /   Karlar  17. braut

     

Viðauki við staðarreglur Marina golfvallar:

  1. braut: Fallreitur er á miðri braut móts við girðingarhornið. Skal nota hann hafi bolti farið út fyrir vallarmörk eða tínst upp í hlíðinni  Gegn einu vitahöggi. 

Vinstra megin  á brautinni er merkt sem hliðar vatns torfæra.

ATHUGIÐ;  

Í   Punktakeppni:

Æskilegt: Til að flýta leik taki leikmaður upp bolta ef stefnir í tvöfalt par á leikinni braut.

Á golfvellinum:

  1. Skiptast á skorkortum
  2. Leikmaður og ritari eru samábyrgir fyrir talningu högga leikmanns.
  3. Um leið og golfbolti er kominn í holu skal leikmaður tilkynna höggafjölda sem hún/hann hefur leikið.
  4. Sé ritari ekki sammála skal gera athugasemdir strax.
  5. Leik á braut er ekki lokið fyrr en bolti er í holu.
  6. Verði uppi ágreiningur um atriði í leik skal tilkynna það mótsstjórn að leik loknum og skal úrskurður mótsstjórnar gilda.
  7. Að öðru leiti gilda almennar golfreglur og viðaukareglur sem klúbburinn hefur sett sér.

Regla 6-6. Skor í höggleik ( punktakeppni )

  1. Að lokinni umferð á keppandi að fara yfir skor sitt á hverri holu og gera út um vafa atriði með mótsstjórn. Keppandinn verður að ganga úr skugga um að ritarinn/ritararnir hafi undirritað skorkortið. Undirrita kortið sjálfur og afhenda mótsstjórn eins fljótt og unnt er.

Röng skor á holu: Keppandi ber ábyrgð á að rétt skor sé skráð á skorkort hans fyrir hverja holu. Ef hann afhendir kort þar sem lægra skor er skráð sem reynist ekki rétt.  

SÆTIR:  Hún / Hann  FRÁVÍSUN.                              

                                                                                               Mótstjórn Golfkl. Teigs

Comments are closed.