Keppnisskilmálar 12-13 nóv. í Mojacar.
Haustmót Golfklúbbsins Teigs.
12. og 13. Nóv. 2019 á MARINA GOLFVELLINUM Í MOJACAR. Mótsstjórn: Laila, Hilmar, Sigurður og Emilía, Ræsir og dómari Símon
Punktakeppni með forgjöf: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem fær flesta punkta samtals fyrir báða keppnisdaga. Einnig verða verðlaun veitt fyrir annað og þriðja sæti í báðum flokkum, karlar og konur.
Höggleikur án forgjafar: Fyrsta sæti hlýtur hún/hann sem hefur fæst högg án forgjafar fyrir báða keppnisdaga.
Ef sami keppandi hlýtur 1. sæti í báðum flokkum skal hann/hún aðeins fá verðlaun fyrir höggleikinn. Sá/sú sem næst kemur í punktum skal hljóta verðlaunin í þeirri keppni.
Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir að punktum eða höggum að lokinni keppni skal hún/hann sem lék á flestum punktum eða fæstum höggum síðustu níu holurnar á síðari keppnisdegi ef enn er jafnt reiknast síðustu sex og ef enn er jafnt reikna síðustu þrjár, dugi það ekki skal varpa hlutkesti.
Niðurstaða mótsins verður tilkynnt í lok aðalfundar og fer þá fram verðlaunaafhending.
Ræst verður út á báða keppnisdaga frá kl. 08.00.
Mæting við golfskála að minsta 45 mín fyrir rástíma.
Seinni keppnisdag verður ræst út frá kl. 08.00. Mæting við golfskála 45 mín fyrir rástíma og ræður árangur fyrri keppnisdags röðun í ráshópa.
Mótsstjórn ásamt aðstoðarfólki fer yfir skorkort að lokinni keppni báða dagana.
Konur leika á RAUÐUM teigum.
Karlar leika áGULUM teigum.
Karlar 70 + mega leika á RAUÐUM teigum ( rauð forgjöf ).
Karlar með grunnforgjöf 26,5 eða hærri mega leika á rauðum Vinsamlega gangið vel um völlinn, muna að laga boltaför á flötum.
Nándarverðlaun eru báða keppnisdagana á öllum par 3 brautum á flöt og lengsta drive á 18 holu á braut
Viðauki við staðarreglur Marina golfvallar:
4. braut: Fallreitur er á miðri braut móts við girðingarhornið. Skal nota hann hafi bolti farið út fyrir vallarmörk eða tínst upp í hlíðini Gegn einu vitahöggi.
Vinstra megin á brautini er merkt sem hliðar vatns torfæra.
ATHUGIÐ; Í Punktakeppni: Æskilegt: Til að flýta leik, taki leikmaður upp bolta ef stefnir í tvöfalt par á leikinni braut.
Á golfvellinum:
- Skiptast á skorkortum
- Leikmaður og ritari eru samábyrgir fyrir talningu högga leikmanns.
- Um leið og golfbolti er kominn í holu skal leikmaður tilkynna höggafjölda sem hún/hann hefur leikið.
- Sé ritari ekki sammála skal gera athugasemdir strax.
- Leik á braut er ekki lokið fyrr en bolti er í holu.
- Verði uppi ágreiningur um atriði í leik skal tilkynna það mótsstjórn að leik loknum og skal úrskurður mótsstjórnar gilda.
- Að öðru leiti gilda almennar golfreglur og viðaukareglur sem klúbburinn hefur sett sér.
Regla 6-6. Skor í höggleik. ( punktakeppni )
- Að lokinni umferð á keppandi að fara yfir skor sitt á hverri holu og gera út um vafa atriði með mótsstjórn. Keppandinn verður að ganga úr skugga um að ritarinn/ritararnir hafi undirritað skorkortið. Undirrita kortið sjálfur og afhenda mótsstjórn eins fljótt og unnt er.
Röng skor á holu: Keppandi ber ábyrgð á að rétt skor sé skráð á skorkort hans fyrir hverja holu. Ef hann afhendir kort þar sem lægra skor er skráð sem reynist ekki rétt SÆTIR HANN FRÁVÍSUN.
Mótstjór Golkl, Teigs.