Ágætu félagar.
Eins og þið vitið þá er svolítið hringl með dagsetningar í miðri viku á þessu ári. Við eigum skráða 32 rástíma MIÐVIKUDAGINN 12. febrúar kl. 10:00 og á sama tíma MIÐVIKUDAGINN 19. febrúar en þá eigum við 40 rástíma frátekna. Þessir miðju viku tímar verða ýmist á miðvikudögum eða fimmtudögum og sjaldnast á sama tíma. Bendi ykkur á að skoða þessar tímasetningar á heimasíðunni.
Eins og staðan er núna þá eru einungis 9 manns búnir að skrá sig n.k. miðvikudag.
Er ekki rétt að taka sig á og bóka svo hægt sé að nýta tímann.
KOMA SVO
Kveðja f.h. mótanefndar
Hjörtur