Mót í gær, þriðjudag 11. okt,,,
frábært veður, allir í góðum gír, mynd af verðlaunahöfunum Minnum á Texas Scramble mót á föstudaginn,, 14. okt
frábært veður, allir í góðum gír, mynd af verðlaunahöfunum Minnum á Texas Scramble mót á föstudaginn,, 14. okt
Hér koma úrslit 11.10.2022. Konur. 1. sæti Þuríður Jóhannsdóttir 33 punktar 2. sæti Bryndís Theódórsdóttir 33 punktar Karlar. 1. sæti Hilmar E. Helgason 43 punktar 2. sæti Hjörtur B. Árnason 39 punktar Næst holu eftir 1 högg á 2. holu Magni Jóhannsson 3.08 m.
Ágætu félagar, Næsta föstudag (14. okt.) verður aukamót utan mótaraðar hjá okkur. Fyrirkomulagið verður Texas Scramble með forgjöf. Þá leika tveir kylfingar saman í liði og fer leikurinn þannig fram að báðir leikmenn slá af teig og velja síðan betra teighöggið. Því næst slá báðir af þeim stað og velja svo aftur betra höggið. Þannig gengur leikurinn fyrir sig þar til boltinn er kominn í holuna. Um er að ræða höggleik og er forgjöf liðsins fengin með því að deila…
Konur. 1. sæti Ragna Valdimarsd. 46 p. 2. sæti Þuriður Jóhannsd. 38 p. Karlar 1. sæti Hermann Bragason 42 p. 2. sæti Hilmar E. Helgason 41p. Nándarverðlaun Bjarni Jensson á 7. braut 5.08m .
Leikmenn athugi að þeir sem hafa raðað sér sjálfir í ráshópa spila utan mótaraðarinnar. Að þessu sinni var ekki hægt að taka neina gesti með þar sem við höfum aðeins 48 rástíma til umráða og 48 félagar skráðu sig að þessu sinni. Minni leikmenn á að þeir eiga að vera komnir á teig eigi síðar en 10 mínútum fyrir auglýstan rástíma. Verum samtaka í að bera af okkur góðan þokka meðal annarra golfleikara á okkar velli, góða skemmtun og gangi…
Fyrsta formlega golfmót vetrarins, var á þriðjudaginn á VistaBella vellinum frábært veður, logn, heitt og rakt, en mjög gaman
Leikmenn athugi að þetta er fyrsta umferð mótaraðarinnar þetta árið. reglur um skráningu og framkvæmd verða birtar hér innan skamms. Munið að halda leikhraða og miða við hollið á undan ykkur en ekki það sem kemur næst á eftir ykkur. Einnig er ástæða til að minna leikmenn á að ávallt skal spila út á allar holur, ekki er leyfilegt að gefa högg í þessari keppni. “Mulligan” er ekki heldur til hjá okkur. Ef þið eruð í vafa um einhver tilvik…
Ágætu félagar, Hér fylgja upplýsingar varðandi skráningu í ferðina til Mojacar: Skráning fer fram á heimasíðu Teigs: TEIGUR / SKRÁNING Í GOLF Í MOJACAR. Skráning hefst 1. október. Skráningu lýkur 25. október. Greiðsla þarf að berast til Hilmars Helgasonar gjaldkera í síðasta lagi 29. október. Þegar skráð er í reitinn 2ja manna herbergi þarf að setja 0 í hinn reitinn. Taka verður fram við skráningu hverjir spila. Klúbbfélagar eru ábyrgir fyrir greiðslu gesta sinna.
Sælir félagar, Mótaröðin hefst næsta þriðjudag (4. okt.) og verður leikið alla þriðjudaga til loka nóvember (utan 15. nóv. þegar við verðum í Mojacar). Tvö mót utan mótaraðar verða síðan föstudaginn 14. október og fimmtudaginn 10. nóvember. Leikform verður auglýst þegar nær dregur. Á næsta ári verða svona aukamót mun tíðari og nánar skýrt frá því á fundinum í Mojacar.
You must be logged in to view this content.