Kæru félagar, leikröðin hefst 1. febrúar 2022.
nú hefst leikröð ársins og munum við þá fá prentuð skorkort og skráning hefst þannig að tilbúin skorkort verða til afhendingar á vellinum fyrir upphaf leiks. Gestir spila utan leikraðarinnar en geta spilað með félögum ef þannig stendur á. Þeir sem spila einungis 9 holur eru að sjálfsögðu utan leikraðarinnar. Viðurkenningar fyrir góðan árangur félaga verða afhentar að leik loknum. Félagar eru beðnir um að mæta tímanlega og gestir gefi sig fram við gjaldkera fyrir leik og allir ganga jafnframt…
Teigur, rástímar á Vistabella 01.02.’22
Leikmenn eru beðnir að taka til greina reglur um háttarlag á golfvöllum og þá einkanlega reglur um gagnkvæma kurteisi og tillitsemi á vellinum. Undir þetta falla óskir um að leikmenn haldi uppi góðum leikhraða og hafi þá augun á hollinu á undan og gæti þess að dragast ekki aftur úr en hleypi fram úr ef ekki er unnt að halda eðlilegum leikhraða. Munum að kurteisi kostar ekki neitt eins og okkur var kennt í æsku (vonandi). Gangi ykkur vel í…
Teigur Amigo, Rástímar 25. jan. 2022
Leikmenn athugi að þar sem þetta er utan mótaraðarinnar þá takið þið skorkort hjá Caddy master um leið og gengið er frá greiðslu. Gangi ykkur vel.
Teigur Amigo, Vistabella 18.01.2022
Kæru félagar, þar sem þessir rástímar eru utan mótaraðarinnar þá vinsamlega takið skorkort hjá Caddie Master og fyllið inn sjálf. Gangi ykkur vel og góða skemmtun, bestu kveðjur
Teigur 11.01.2022, Vistabella Golf, Rástímar
Vinsamlega athugið að leikmenn fylla sjálfir út skorkort þar sem þetta er utan mótaraðar, gangi ykkur vel.
Golf í desember
Kæru félagar, ekki hefur tekist að fá rástíma í desember ennþá en verið er að vinna að því að við fáum einhverja tíma áður en öll nótt er úti. Strax og eitthvað er vitað þá verður það birt hér á síðunni og þess vegna er áríðandi að þið fylgist vel með því sem birtist hérna. Ég mun tilkynna um leið og eitthvað gerist í málunum. Einnig er verið að vinna að frágangi á rástímm á næsta ári og verður það…
Vistabella, úrlsit 26. 11. 2021
Konur: 1.sæti Þuríður Jóhannsdóttir 37. punktar 2.sæti Helga Emilsdóttir 34. Punktar Karla:3 1.sæti Sigurjón Sigurðsson 41. Punktar 2.sæti Magni Jóhannnsson 36. Punktar. Nándarverðlaun á 7. Braut eftir eitt högg. JoAnn Önnudóttir 3,43 m .
Félagsgjöld
Athygli félaga er vakin á því að samkvæmt samþykkt aðalfundar er eindagi félagsgjalda fyrir árið 2022 , 1. janúar 2022 . Þeir sem ekki greiða eða láta vita fyrir þann tíma teljast ekki lengur vera félagar í golfklúbbnum Teigi Amigos á Spáni. Hilmar Helgason gjaldkeri netfang: hilli.helgason@gmail.com