Heimasíða teigs

Heimasíða teigs

Íslenskur golfklúbbur á Spánarströndum

Golfklúbburinn Teigur er stofnaður í byrjun febrúar 2011. Nokkrir félagar konur og karlar sem dvöldu á Costa Blanca ströndinni höfðu í nokkurn tíma spilað saman golf. Þau ásamt fjölda annarra íslendinga dvelja hluta vetrar á Spáni og ekkert er ánægjulegra en að spila golf á glæsilegum völlum í veðurblíðunni á suður ströndum. Það var þá þegar ljóst að þörf fyrir golfklúbb var fyrir hendi og því var ákveðið af þessum fámenna en samheldna hópi að leggja drög að stofnun formlegs golfklúbbs.

Fyrsta árið var farið varlega af stað og ákveðið að leggja drög að starfsreglum og frekari umgjörð um starfið. Ákveðið að stefna að formlegum fundi í nóvember, samþykkja starfsreglur og kjósa klúbbnum stjórn. Þetta gekk eftir og síðan höfum við unnið að framgangi klúbbsins á markvissan hátt.

Margir félaganna eru komnir á eftirlaunaaldur, þau hafi valið það lífsmunstur að dvelja heima á Íslandi á sumrum en á Spáni á vetrum. Það hefur oft verið sagt og er rétt að spila golf er gott fyrir líkama og sál, ekki síst þegar fólk er komið á efri ár. Það er því eitt af markmiðum klúbbsins að félagarnir geti ekki aðeins iðkað golf, heldur ekki síst að mynda vinahóp og skapa félagslega samheldni fyrir okkar fólk.

Eyjólfur Sigurðsson, fyrsti formaður Teigs 12. febrúar 2018