Minnisblað vegna vorferðar

Minnisblað vegna vorferðar

Golfklúbburinn Teigur

MINNISBLAÐ vegna Vorferðar Teigs félaga til Mojacar, Almeria dagana 8. – 11. apríl 2019

*

Hótel:

Best Oasis Tropical Hotel

Avda. Del Mar, 1

Marina de la torre 04638 Mojacar, Almeria

w.w.w. besthotels.es

*

Innskráning:

Við innskráningu á hótel þarf að sýna vegabréf. – Hótelinu ber ekki skylda til að hafa herbergi

tilbúin fyrr en kl. 13.30.

*

Golf:

Marina golfvöllurinn er í göngufæri frá hóteli.

Teiggjald er 38€ hringurinn. Innif. er golf og golfbíll.

*

Umhverfi golfvallar:

Marina golfvöllurinn er í afar hæðóttu landslagi og því ráðlagt að fara mjög varlega.

*

Mæting við golfskála: Fyrri dagur (þriðjudagurinn 9. apríl) kl. 10.20 fyrir fyrstu ráshópa og

seinni dag (miðvikudagurinn 10. apríl) kl. 10.30. – Ráshópar og rástímar verða auglýstir í móttökusal hótelsins.

Nokkrir möguleikar eru í leiðavali til Mojacar

Auðveldasta leiðin er að taka AP7 (tollur) frá Cartagena alla leið til Vera. Frá Vera taka

C3327 til Garrucha og síðan áfram stutta leið með ströndinni í áttina til Mojacar.

GÓÐA FERÐ

Comments are closed.